Rússar segja að ekkert liggi á láni til Íslendinga 16. júní 2009 14:02
Dmitry Pankin aðstoðarfjármálaráðherra Rússlands segir að ekkert liggi á því að afgreiða lán Rússa til Íslendinga þar sem þeir hafi ekki sérstaka þörf fyrir lánið í augnablikinu. Þetta kemur fram í viðtali PRIME-TASS fréttastofunnar við Pankin en Reuters greinir frá því. Fram kemur í máli Pankin að þótt gengið yrði til samninga nú yrði lánið ekki veitt fyrr en á næsta ári. Sendinefnd á vegum íslenskra stjórnvalda fór til Rússlands í síðustu viku til að semja um lánið. „Það liggur ekkert á því af hálfu Rússa að veita lánið. Að öllum líkindum verður rætt um nauðsyn þess að taka ákvörðun til lengri tíma...hugsanlega verður eitthvað látið af hendi rakna 2010," er haft eftir ráðherranum. Pankin segir jafnframt að allar upplýsingar sem fyrir liggi verði skoðaðar og síðan settar saman í skýrslu til stjórnar Rússlands sem tekur lokaákvörðun í málinu. Um er að ræða 500 milljónir dollara eða um 64 milljarða kr. Aðspurður um hvort Íslendingar geti ekki fengið lánið á þessu ári ítrekaði Pankin að engar ákvarðanir hefðu verið teknar. Upphaflega var rætt um að lán Rússa næmi 4 milljörðum evra en Rússar töldu þá upphæð alltof háa og sögðu 500 milljónir dollara vera lagi. Síðan þá hefur efnahags Rússlands tekið mikla dýfu niður á við og er landið nú í fyrstu kreppu sinni á síðustu 10 árum. Landið hefur þurft að nota þriðjung af gjaldeyrisforða sínum til að halda gengi rúblunnar á floti. Pankin sagði Reuters fyrir mánuði síðan að þegar upphaflegu viðræðurnar um lánið hófust hafi Rússar ekki átt von á að staða þeirra yrði jafnslæm og hún er nú. Hann bætti svo við að hann gæti ekki sagt um hvort málið hefði alveg verið slegið út af borðinu.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira