Kaupþingi í Lúx skipt upp í tvö félög 31. desember 2009 12:32
Kaupþingi í Lúxemborg var skipt upp í tvö félög við endurskipulagningu bankans. Öll lán til viðskiptavina, m.a. íslenskra útrásarvíkinga sem voru hluthafar í bankanum sjálfum, fóru inn í nýtt félag sem nú er stýrt af kröfuhöfum gamla bankans sem reyna hvað þeir geta til að hámarka endurheimtur sínar. Í júlí sl. samþykktu helstu lánadrottnar Kaupþings í Lúxemborg áætlun um endurskipulagningu bankans. Fréttir bárust af því að Rowland fjölskyldan hefði tekið bankann yfir, lagt til nýtt hlutafé og efnahagsreikningurinn núllstilltur. Gögn sem fréttastofa hefur undir höndum sýna aftur á móti að bankanum var skipt upp í tvennt - í Banq Havilland og fyrirtæki sem er kallað verðbréfafyrirtæki. Ekki ósvipað og gert var hér á landi þegar bönkunum var skipt upp í gömlu og nýju bankana. Munurinn er þó að verðbréfafyrirtækið er ekki þrotabú heldur félag sem er starfandi. Inn í það fóru öll lán, verðbréf, skuldir vegna gjaldeyrisviðskipta auk innstæðu að lágmarki 7 milljarða króna. Eigendur þessa verðbréfafyrirtækis eru helstu lánadrottnar Kaupþings í Lúxemborg sem eru um 30 bankar sem flestir eru staðsettir í Benelux löndunum og Þýskalandi. Þetta þýðir að öll lán sem Kaupþing í Lúxemborg veitti íslenskum útrásarvíkingum og helstu viðskiptavinum sínum eru nú komin inn í nýtt félag sem kröfuhafar stýra. Í lánabók Kaupþings má sjá að lán til helstu viðskiptavina bankans nema um 360 milljörðum íslenskra króna, í þeim hópi eru m.a. Skúli Þorvaldsson, Bakkabræður, Ólafur Ólafsson og Kevin Stanford. Samkvæmt heimildum fréttastofu sýna kröfuhafar mikla hörku við innheimtu og veigra sér ekki við að fara dómstólaleiðina. Það er Banq Havilland sem sér um innheimtuna fyrir kröfuhafa.
Mest lesið Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Viðskipti innlent Hvað á að gera við fermingarpeningana? Viðskipti Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Viðskipti innlent Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Viðskipti innlent Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Viðskipti innlent Markaðurinn tók tíðindunum vel Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Sjá meira