Marel selur eignir fyrir sex milljarða 14. apríl 2009 14:57
Marel hefur selt eignir utan kjarnastarfsemi sinnar fyrir samtals 37,5 milljónir evra eða rúmlega 6 milljarða kr. Í tilkynningu segir að þær eignir sem nú eru seldar eru annars vegar fasteignir og lóðaréttindi í Amsterdam, sem áður tilheyrðu Food & Dairy hluta Stork Food Systems, og hins vegar Scanvaegt Nordic A/S sem starfar utan matvælageirans. Marel notar söluandvirði til að auka sjóðsstöðu og greiða niður skammtímaskuldir. Af 37,5 milljóna söluandvirði eru 35 milljónir evra staðgreiddar. Söluandvirði eignanna er að fullu í samræmi við upphafleg markmið stjórnenda. Yfir 10 milljóna evru söluhagnaður bókast við söluna sem nánar verður gerð grein fyrir við birtingu uppgjörs félagsins 6. maí n.k. Marel hefur áður tilkynnt að til stæði að selja 2-4 eignir utan kjarnastarfsemi félagsins á yfirstandandi ári. Stefnt er að því að afla samtals yfir 50 milljónir evra, með óverulegum heildaráhrifum á rekstrarhagnað, sem koma til aukningar á sjóðsstöðu og lækkunar á skammtímaskuldum. Sala á rekstri Food & Dairy er í vinnslu auk þess sem sala á 1-2 eignum til viðbótar eru til skoðunar. „Í kjölfar sameiningar Marel og Stork Food Systems á síðasta ári tilkynntum við að aukin áhersla yrði lögð á að bæta arðsemi og innri vöxt í kjarnastarfsemi. Kjarnastarfsemi okkar felst í þjónustu og sölu á hátæknilausnum fyrir kjúklinga-, kjöt- og fiskiðnað. Við erum í einstakri stöðu til þess að sinna þörfum ört vaxandi viðskiptavina okkar á heimsvísu," segir Theo Hoen, forstjóri Marel. Kaupandi Scanvaegt Nordic rekstrarins er Grundtvig fjölskyldan sem stofnaði Scanvaegt á árinu 1932. Heildarvelta Scanvaegt Nordic á síðasta ári var ríflega 31,2 milljónir evra með 2,9 milljónir EBIT hagnað. Fyrrgreindar fasteigni eru við Ketelstraat í Amsterdam, en þar var áður rekstur Food & Dairy hluta Stork Food Systems BV. Starfsemi Food & Dairy hefur þegar verið flutt í annað húsnæði í Amsterdam. Salan fór fram með lokuðu útboði þar sem nokkrir valdir fasteignafjárfestar tóku þátt.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira