Hlutabréf í Royal Unibrew rjúka upp í verði 14. apríl 2009 10:57
Mikill skriður hefur verið á verði hlutabréfa í bruggverksmiðjunum Royal Unibrew í kauphöllinni í Kauðmannahöfn í morgun. Hefur verðið á bréfunum hækkað um 22% m.v. stöðuna á þeim fyrir páska. Stoðir er einn stærsti hluthafinn með fimmtungshlut. Samkvæmt frétt um málið á business.dk eru þrjár ástæður að baki þessum miklu hækkunum. Í fyrsta lagi hafa tveir af stórum hluthöfum í Unibrew nú lokið útsölu sinni á hlutum sínum og eru báðir komnir með undir 5% hlut. Þetta eru European Participations N.V. og Artio Global. Í öðru lagi eru í gangi vangaveltur um að Harboe bruggverksmiðjan hyggi á yfirtöku á Unibrew á næstunni. Jyllands-Posten greindi frá því nýlega að Bernd Griese forstjóri Harboe væri tilbúinn að verja allt að einum milljarði danskra kr. í að kaupa Unibrew. Markaðsvirði Unibrew er 330 milljónir danskra kr. í augnablikinu en taka ber tillit til þess að ef Harboe yfirtekur Unibrew yrði það einnig að yfirtaka 2 milljarða danskra kr. skuldapakka sem hvílir á Unibrew. Og í þriðja lagi er bent á að stjórnarmenn í Unibrew hafa verið iðnir við að kaupa hluti í bruggverksmiðjunum að undanförnu sem bendi til að áætlanir þeirra keyri áfram eins og til er ætlast.
Mest lesið Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira