Erlendar skuldir ríkisins 200% af landsframleiðslu Gunnar Örn Jónsson skrifar 14. júlí 2009 09:54
Eins og Fréttablaðið greindi frá í morgun nema erlendar skuldir ríkisins 200 prósentum af vergri landsframleiðslu Íslands, samkvæmt nýju mati Seðlabankans. Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skattanefndar, vildi ekki tjá sig um málið við fréttastofu þegar leitað var til hans í morgun. Hann sagðist vilja bíða eftir því að málið yrði kynnt í þingflokknum en á morgun verður matið kynnt þingflokkum stjórnarflokkanna. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að skuldastaðan hafi verið kynnt tveimur þingnefndum í gær, efnahags- og skattanefnd og fjárlaganefnd. Ein meginforsenda áætlunar Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var sú að erlend skuldastaða þjóðarbúsins við lok 2009 myndi vera af stærðargráðunni 160 prósent af vergri landsframleiðslu Íslands. Með erlendri skuldastöðu er hér átt við erlendar skuldir Íslands í heild sinni, en ekki einungis ríkisins. Eins og komið hefur fram í fréttum Stöðvar 2 nema erlendar skuldir þjóðarbúsins um 250 prósentum af vergri landsframleiðslu. Þeir útreikningar byggja á tölum frá því í mars. Í nóvember var það mat Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að skuldahlutfall upp á 240 prósent væri óviðráðanlegt fyrir Ísland. Þar sem heimildir Fréttablaðsins herma að erlendar skuldir ríkisins nemi tvöfaldri landsframleiðslu má fastlega gera ráð fyrir því að erlendar skuldir Íslands séu hátt í 300 prósent af landsframleiðslu, reynist þessar heimildir á rökum reistar.
Tengdar fréttir Þingmenn geta ekki tekið upplýsta ákvörðun Þingmenn geta ekki tekið upplýsta ákvörðun um Icesave samningana án þess að erlend skuldastaða Íslands liggi fyrir. Þetta segir Gunnar Tómasson, hagfræðingur. 11. júlí 2009 18:50 Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira
Þingmenn geta ekki tekið upplýsta ákvörðun Þingmenn geta ekki tekið upplýsta ákvörðun um Icesave samningana án þess að erlend skuldastaða Íslands liggi fyrir. Þetta segir Gunnar Tómasson, hagfræðingur. 11. júlí 2009 18:50