Afnám hafta hækkar gengi krónunnar Gunnar Örn Jónsson skrifar 11. ágúst 2009 11:58
Greining Íslandsbanka telur að við afnám gjaldeyrishafta muni gengi krónunnar styrkjast en misjafnar skoðanir eru á því. Seðlabankinn hefur opinberlega tilkynnt um áætlun um afnám haftanna. Dregið verður úr höftunum í skrefum eins og komið hefur fram og alls er óvíst hversu langur tími líður þar til höftunum verður fullkomlega aflétt. Bankinn telur að fljótlega verði höftum aflétt af öllu innflæði fjármagns. Greiningin segir að opnun á innstreymi fjármagns en áframhaldandi höft gæti átt eftir að virka sem hvati fyrir eigendur gjaldeyris til þess að selja hann fyrir krónur. Það að fullkomin fleyting sé ekki handan við hornið gæti þýtt að þeir sem liggja á gjaldeyri fari að horfa meira í vaxtamuninn milli krónunnar og erlendra mynta og þar með fórnarkostnaðinn af því að liggja með gjaldeyri inn á lágvaxta gjaldeyrisreikningum. Þetta þýðir einfaldlega að Íslandsbanki telur að eftirspurn eftir íslenskum krónum muni aukast með tilheyrandi hækkun á gengi krónunnar. Á hinn bóginn gæti þetta átt eftir að hafa þau áhrif að skil á útflutningstekjum til innlendra bankastofnanna verði verri en raunin er nú og að menn muni eflast enn frekar í því að finna leiðir framhjá höftunum. Þar með fái útflutningsfyrirtæki fleiri krónur í vasann fyrir gjaldeyristekjur sínar á erlendum mörkuðum og komast þar af leiðandi hjá því að eiga viðskipti við innlendar fjármálastofnanir.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira