Bankaleynd hérlendis svipuð og í öðrum löndum 17. apríl 2009 14:29
Það er niðurstaða nýrrar skýrslu að ákvæði íslenskra laga um trúnaðar- og þagnarskyldu fjármála- og eftirlitsstofnana séu í aðalatriðum sambærileg reglum samanburðarríkjanna. Af niðurstöðu skýrslunnar má ráða að nokkur munur sé á reglum um þagnarskyldu eftirlitsaðila, að því er varðar þá sem miðla má upplýsingum til. Minni takmarkanir er t.d. að finna í dönskum og breskum rétti á því hverjir geta fengið aðgang að upplýsingum frá fjármálaeftirliti en í íslenskum, norskum og þýskum rétti. Niðurstaða þessi er þó sett fram með fyrirvara um nýjar heimildir íslensks réttar vegna hlutverks sérstaks saksóknara og rannsóknarnefndar um fall íslensku bankanna og hugsanlegar heimildir á öðrum sviðum réttarins. Greint er frá málinu á vefsíðu stjórnarráðsins. Þar segir að vegna umfjöllunar um bankaleynd að undanförnu ákvað viðskiptaráðuneytið að fá sérfræðing til að vinna skýrslu um bankaleynd og var Dóra Guðmundsdóttir lögfræðingur fengin til verksins. Í skýrslunni er að finna yfirlit um ákvæði íslenskra laga um trúnaðar- og þagnarskyldu fjármála- og eftirlitsstofnana og samanburð við sambærilegar reglur í Danmörku, Noregi, Þýskalandi og Bretlandi. Jafnframt er gerður almennur samanburður á íslenskum reglum og reglum Sviss, Lúxemborgar og Liechtenstein sem þekkt eru fyrir ríka bankaleynd. Í skýrslunni er í fyrsta lagi fjallað um hugtakið bankaleynd. Þar kemur fram að hugtakið er ekki skilgreint í íslenskum lögum og einnig að í almennri umræðu sé hugtakið rýmra en lagaleg afmörkun þess bendi til. Þá kemur fram að hér á landi sé þagnarskylda starfsmanna um upplýsingar um viðskiptavini lögbundin, líkt og í Noregi og Danmörku og að brot á þagnarskyldunni varði refsingu. Í öðrum ríkjum, t.d. í Þýskalandi og Bretlandi, byggi þagnarskyldan á samningi aðila þar sem brot á þagnarskyldu varði einkaréttarlegum viðurlögum frekar en refsiviðurlögum. Þá er fjallað um dómaframkvæmd um ákvæði um bankaleynd og um tengsl ákvæða um þagnarskyldu og upplýsingaskyldu. Í framhaldi af þessu mun viðskiptaráðuneytið fara yfir niðurstöður skýrslunnar og gera tillögur um breytingar. Þá er einnig á vegum ráðuneytisins unnið að breytingum á reglum um upplýsingagjöf um eignarhald og tengsl eigenda fjármálafyrirtækja.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira