Fasteignafélag stofnað um byggingu háskólasjúkrahúss 7. september 2009 09:52 Mynd ÞÖK
Meðal þeirra hugmynda sem uppi eru um aðkomu lífeyrissjóðanna að endurreisn atvinnulífsins er að stofnað verði fasteignafélag um byggingu háskólasjúkrahússins. Yrði félagið í eigu lífeyrissjóðann og jafnvel fleiri fjárfesta. Hrafn Magnússon framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóðann segir að þegar gengið var frá stöðugleikasáttmálanum í sumar hafi verið gert ráð fyrir aðkomu lífeyrissjóðanna með fjármagn til mannfrekra framkvæmda. Bygging háskólasjúkrahúss sé slík framkvæmd. „Það sem hangir á spýtunni er að ekki er hægt að auka við skuldir ríkissjóðs umfram það sem nú er," segir Hrafn. „Þetta er leið til að komast hjá því en spurningin er hvernig Alþjóðagjaldeyrissjóðnum líst á þessar hugmyndir." Hrafn segir að fundað verði um málið í þessari viku en hugmyndin er að eftir að háskólasjúkrahúsið er risið myndi fasteignafélagið leigja ríkissjóði byggingarnar. „Síðan gæti ríkissjóður hreinlega keypt sjúkrahúsið af fasteignafélaginu í framtíðinni þegar fjárhagsstaða sjóðins batnar." Önnur verkefni sem lífeyrissjóðirnir eru með á prjónunum er stofnun Fjárfestingarsjóðs Íslands til að halda utan um þau verkefni sem sjóðirnir ætla að ráðast í hvað varðar endurreisn atvinnulífsins. Hrafn segir að í þann sjóðs sé ráðgert að setja allt að 75 milljarða kr. „Það eru mörg önnur mannfrek verkefni sem lífeyrissjóðirnir geta hugsað sér að koma að eins og til dæmis Búðarhálsvirkjun, vegagerð og fleira," segir Hrafn.
Mest lesið Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Neytendur Almannatenglar stofna fjölmiðil Viðskipti innlent Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sjá meira
Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent
Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent