Rotið eðli bankanna að koma í ljós 16. ágúst 2009 12:17
Tæpu ári eftir hrun íslensku bankanna er rotið eðli þeirra smátt og smátt að koma í ljós, segir í grein í breska blaðinu Telegraph. Greinin birtist á vef Telegraph í gærkvöldi og ber yfirskriftina: Hvaða ljótu leyndarmál bíða uppljóstrunar eftir bankahrunið á Íslandi? Þar segir að nú hafi komið í ljós að hrun íslensku bankanna sé ekkert venjulegt hrun. Rannsókn standi nú yfir á Íslandi og víðar á því hvort refsivert athæfi hafi viðgengist í bönkunum þremur. Svo mánuðum skipti hafi verið uppi orðrómur um markaðsmisnotkun, óeðlilegar lánveitingar til eigenda og fjármagnsflutninga í skattaskjól. Þá er minnt á að við hrun bankanna hafi 300 þúsund breskir sparifjáreigendur staðið frammi fyrir því að geta ekki nálgast fé sitt. Breska fjármálaráðuneytið hafi neyðst til þess að greiða 7,5 milljarða punda til breskra sparifjáreigenda sem áttu innistæður á Icesave reikningum Landsbankans og Edge reikningum Kaupþings. Í greininni er vísað til orða Evu Joly um að rannsóknin verði væntanlega sú viðamesta í sögunni hvað varðar bankahrun og efnahagshrun. Þá segir í grein Telegraph að mörg leyndarmál bankanna eigi væntanlega eftir að reynast mörgum erfitt með að skilja og að eltingarleikurinn við eignir snerti mörg heimili Í Bretlandi. Fjallað er um tap breskra sveitarfélaga á íslenska bankahruninu og áhrifin sem það hefur á stöðu sveitarfélaganna og þjónustuna sem þau geta boðið íbúum sínum á næstu árum. Einnig er fjallað um lekann á lánabók Kaupþings og veldi Bakkavarabræðra, Lýðs og Ágústs. Þá er vikið að kaupum Al Thani á hlut í Kaupþingi síðasta haust og þau viðskipti sögð myrk. Greinina er hægt að sjá hér.
Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Sjá meira