Segir verðbólguna aukast í endurskoðaðri spá 22. júní 2009 11:16
Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 0,9% frá fyrri mánuði og að verðbólgan fari upp í 11,7% og hækkar lítillega en nú er hún 11,6%. Hagstofan birtir vísitöluna fyrir júnímánuð á miðvikudaginn kemur. Þetta er hækkun frá fyrri spá greiningarinnar en áður gerði hún ráð fyrir 0,7% hækkun vísitölunnar á milli mánaða. Meiri verðhækkun eldsneytis, áfengis og tóbaks í kjölfar hækkunar opinberra gjalda veldur þar mestu um.Þá gerir greiningin nú ráð fyrir að húsnæðisliður vísitölunnar muni lækka minna en við reiknuðum með áður. Nú gerum við ráð fyrir því að húsnæðisliðurinn lækki vístöluna um 0,1% á milli mánaða.Á næstu mánuðum munu lækkandi húsnæðisverði og vaxandi slaki á vinnumarkaði sem og í hagkerfinu í heild draga úr verðbólguþrýstingi. Á móti vegur gengislækkun krónunnar og skattahækkanir stjórnvalda.Enn eiga áhrif af hækkun opinberra gjalda á áfengi, tóbak og eldsneyti eftir að skila sér að fullu inn í vísitöluna og þá hefur verið tilkynnt að ýmsar matvörur verði færðar yfir í efra þrep virðisaukaskatts. Mun þetta taka gildi 1. september næstkomandi og er reiknað með að það valdi 0,25% hækkun á vísitölu neysluverðs. Greining segir í Morgunkorni sínu að líklega sé aukin verðbólga nú á milli mánaða einungis tímabundið bakslag en verðbólgan hefur verið á niðurleið síðustu mánuði. Um áramótin síðustu mældist hún 18,6% og hefur því lækkað töluvert síðan. Vaxandi slaki í hagkerfinu með litlum sem engum launaþrýstingi, lækkandi íbúðaverði og almennt afar litlum eftirspurnarþrýstingi mun draga kraftinn úr verðbólgunni.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira