Landsbankinn: Eignasafnið rýrnar um 95 milljarða 22. júní 2009 12:11 Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans. MYND/Pjetur
Eignasafn Landsbanks hefur rýrnað um 95 milljarða frá fyrra mati sem gert var í febrúar. Ríkisstjórnin samdi á dögunum um að ábyrgjast 2,35 milljarða Sterlingspunda og 1,329 milljarða Evra eða alls um 736 milljarða króna. Talið er að um 115 milljarðar, af þessum 736 milljörðum, muni lenda á Íslenska ríkinu vegna Icesave samkomulagsins þegar það verður gert upp. Þetta kom fram á nýloknum fundi efnahags- og skattanefndar þar sem fulltrúar skilanefndar Landsbankans gerðu grein fyrir stöðu mála. Bent er sérstaklega á það í skýrslu skilanefndar að endalegt virði eigna bankans sé háð mikilli óvissu. Samkvæmt uppfærða sundurliðaða eignamatinu, sem unnið er sjálfstætt af sérfræðingum bankans, er gert ráð fyrir að um 1.100 milljarðar kr. fáist fyrir eignir upp í kröfur á hendur bankanum. Miðað við að heildarinnlánskröfur, sem eru alls um 1.330 milljarðar kr. og að langstærstum hluta vegna Icesave innlánsreikninganna í Bretlandi og Hollandi, séu forgangskröfur, þýðir þetta að um 83% fást upp í forgangskröfur miðað við stöðuna 30. apríl síðastliðinn. Heildarvirði eigna Landsbanka Íslands hf. þann 30. apríl 2009 er metið 816 milljarðar kr. Gert er ráð fyrir að við þá fjárhæð bætist 284 milljarða kr. greiðsla frá NBI hf., sem er gagngjald fyrir þær eignir sem fluttar voru yfir til NBI hf. í byrjun október síðastliðnum. Samtals nemur virði eignanna því um 1.100 milljörðum kr. sem áður segir. Þessi fjárhæð er háð mikilli óvissu þar sem samningum, sem nú standa yfir um virði og fyrirkomulag þessara eigna er ekki lokið. Verðmatið má sjá í heild sinni í meðfylgjandi pdf skjali.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira