Opnað fyrir Ísland á nýjan leik Gunnar Örn Jónsson skrifar 19. ágúst 2009 14:35 Verslunareigendur hafa margir hverjir lent í miklum vandræðum með innkaup eftir að gjaldeyrishöftunum var komið á eftir bankahrunið síðastliðið haust.
Eitt stærsta greiðslutryggingarfélag heims, Coface, hefur nú staðfest skriflega að fyrirtækið sé tilbúið til að tryggja greiðslur íslenskra fyrirtækja á sama hátt og gildir með fyrirtæki í öðrum löndum. Þetta þýðir að innflytjendur hér á landi mega búast við því að uppbygging trausts í formi reikningsviðskipta á milli landa sé nú í lengra á veg komið en áður. Greiðslutrygging getur þá orðið til þess að innflytjendur þurfi ekki að fyrirframgreiða eða staðgreiða pantanir í sama mæli og hefur tíðkast frá síðastliðnu hausti. Þetta kemur fram á heimasíðu Viðskiptaráðs Íslands. Innflytjendur, sem enn búa við ströng fyrirmæli um staðgreiðslur og innborganir pantana, geta því bent erlendum birgjum sínum á að óska eftir greiðslutryggingu vegna reikningsviðskipta við þau hjá Coface. Almennt gildir þá að erlendur aðili þarf að vera í einhverjum tryggingarviðskiptum hjá Coface og sé það svo mun Coface meta hvert íslenskt fyrirtæki fyrir sig á sama hátt og gildir um fyrirtæki frá öðrum löndum. Coface er þriðja stærsta greiðslutryggingarfélag í heimi en enn sem komið er hafa þau tvö stærstu, Euler Hermes og Atradius, ekki opnað fyrir Ísland. Þessi tvö stærstu hafa verið þau greiðslutryggingarfélög sem hafa tryggt flesta erlenda birgja sem hafa verið í reikningsviðskiptum við íslenska innflytjendur. Hjá Creditinfo má hins vegar sjá á aukningu fyrirspurna frá Coface að íslensk fyrirtæki sitja í vaxandi mæli við sama borð og aðrir þegar lánshæfismat reikningsviðskipta er metið.Yfirlýsing Coface er afrakstur mikillar vinnu stjórnvalda og íslenskra fyrirtækja Þessi yfirlýsing frá Coface og vilji til stuðnings íslenskum fyrirtækjum er afrakstur vinnu sem sett var á laggirnar í nóvember 2008, stuttu eftir að erlend greiðslutryggingarfélög lokuðu fyrir tryggingar á íslenskum fyrirtækjum. Viðskiptaráð og Iðnaðarráðuneytið áttu þá frumkvæði að því að mynda samstarfshóp þeirra aðila sem liðkað gætu fyrir samskiptum við greiðslutryggingarfyrirtækja fyrir hönd íslenskra fyrirtækja. Í þessum hóp hafa starfað, auk Viðskiptaráðs og Iðnaðarráðuneytis, Creditinfo á Íslandi, TM, Sjóvá, Seðlabanki Íslands, Utanríkisráðuneyti, Viðskiptaráðuneyti og fulltrúar allra ríkisbankanna. Þá komu Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, sendiherra í Noregi og Svavar Gestsson, sendiherra í Danmörku, að vinnunni vegna fundarhalda með greiðslutryggingarfélögunum í viðkomandi löndum.
Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Sjá meira