Skuldatryggingaálag ríkissjóðs lækkar 7. ágúst 2009 11:17
Kostnaður við að tryggja skuldabréf ríkissjóðs í evrum til 5 ára hefur lækkað um nærri 1,7% frá miðjum júlí mánuði. Skuldatryggingaálag ríkissjóðs stendur nú í 498 punktum. Við erum þó enn á eftir Kasakstan sem er næst fyrir ofan Ísland með 366 punkta álag. Minnkandi áhættufælni á mörkuðum á þar væntanlega nokkurn hluta að máli, en þó virðast fréttir af ESB-umsókn Íslands og nú síðast af væntu eignarhaldi bankanna einnig leika þar hlutverk. Þetta kemur fram í morgunkorni Íslandsbanka. Nú stendur 5 ára skuldatryggingaálag á ríkissjóð í um 500 punktum, sem samsvarar því að reiða þurfi fram um 5,0% af nafnverði skuldabréfs til að tryggja eiganda þess gegn greiðslufalli næstu 5 árin. Lækkun skuldatryggingaálags á ríkisjóðs er raunar langt í frá einsdæmi, enda hefur áhættufælni farið minnkandi á mörkuðum undanfarna daga. ITRAXX Europe-vísitalan, sem vegur saman skuldatryggingaálag margra helstu fyrirtækja í Evrópu, hefur þannig lækkað um 0,2% frá miðjum júlí mánuði. Hlutfallslega er lækkun íslenska álagsins aðeins meiri en fyrrnefndrar vísitölu þannig að uppbyggingastarf í íslensku efnahagslífi virðist hafa haft sitt að segja um þessa þróun. Álagið er enn afar hátt Enn er skuldatryggingaálag á ríkissjóð Íslands þó það hæsta meðal þróaðra ríkja í Evrópu, en Írland kemur þar næst á eftir með 143 punkta álag. Af nýmarkaðsríkjum í Evrópu er Úkraína með langhæsta álagið, 1.242 punkta, og þar á eftir kemur Lettland með 601 punkta álag. Kasakstan siglir svo í kjölfar Íslands með 366 punkta álag og þarnæst er Litháen með 358 punkta álag.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira