Eftirlaunasjóður starfsmanna Glitnis sameinast Almenna lífeyrissjóðnum 7. ágúst 2009 11:16 Eftirlaunasjóður fyrrverandi starfsmanna Glitnis mun sameinast Almenna lífeyrissjóðnum nái tillaga fram að ganga.
Eftirlaunasjóður starfsmanna Glitnis banka hf. sameinast Almenna lífeyrissjóðnum frá og með 1. október 2009 nái tillaga þess efnis fram að ganga. Tillagan var kynnt á ársfundi Eftirlaunasjóðs starfsmanna Glitnis banka hf. í júní en sjóðfélagar Almenna lífeyrissjóðsins munu kjósa um sameininguna á sjóðfélagafundi í september. Í tilkynningu frá sjóðunum segir að verði sameiningin samþykkt munu réttindi sjóðfélaga í Eftirlaunasjóði starfsmanna Glitnis banka hf. flytjast í Almenna lífeyrissjóðinn og fá sjóðfélagarnir sambærileg réttindi og þeir höfðu áður í eftirlaunasjóðnum. „Réttindin breytast þó þannig að í framtíðinni verða lífeyrisgreiðslur verðtryggðar miðað við vísitölu neysluverðs í staðinn fyrir launavísitölu." Eftirlaunasjóður starfsmanna Glitnis banka hf. er sameignarsjóður sem var með ábyrgð launagreiðanda og bar Glitnir banki hf. ábyrgð á skuldbindingum hans samkvæmt samþykktum. Við fall Glitnis í október 2008 var ljóst að bankinn gat ekki lengur staðið við ábyrgð sína. Þar sem sjóðurinn uppfyllir ekki skilyrði um lágmarksfjölda sjóðfélaga fór Fjármálaeftirlitið fram á að stjórn sjóðsins gerði ráðstafanir til að slíta sjóðnum eða sameinast öðrum sjóði. Eftir könnunarviðræður við aðra lífeyrissjóði var ákveðið að óska eftir formlegum sameiningarviðræðum við Almenna lífeyrissjóðinn. Heildareignir Almenna lífeyrissjóðsins voru 83,2 milljarðar í ársbyrjun 2009 og Eftirlaunasjóðs starfsmanna Glitnis banka hf. 6,4 milljarðar. Heildareignir sameinaðs sjóðs verða því um 90 milljarðar, að því er segir að lokum í tilkynningunni.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira