Óttast að draga muni úr einkaneyslu í Bandaríkjunum 23. maí 2008 20:40
Gengi hlutabréfa lækkaði almennt talsvert á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag. Um er að kenna hagnaðartöku fjárfesta auk þess sem fjárfestar eru uggandi um horfur í efnahagsmálum. Óttast er að neytendur vestanhafs muni halda að sér höndum og draga úr einkaneyslu á næstunni til þess að komast leiðar sinnar í ökutækjum þrátt fyrir síhækkandi olíuverð. Bandarískt hagkerfi er mjög knúið áfram af einkaneyslu og getur samdráttur hennar haft mikil áhrif á bandaríska hagvísa. Hráolíuverð lækkaði hins vegar nokkuð í dag, fór úr hæstu hæðum, 135 dölum á tunnu, og endaði í 132,19 dölum. Á móti veiktist bandaríkjadalur gagnvart helstu gjaldmiðlum í dag og dró það nokkuð úr spákaupmennsku með svartagullið. Olíuverðið snerti mjög við gengi flug- og rekstrarfélaga vestanhafs sem eiga mikið undir lágu olíuverði. Þannig hefur gengi bréfa í UAL Corp., móðurfélagi United Airlines, fallið um tæp 46 prósent í vikunni, í Continental Airlines um tæp 27 prósent og í AMR, móðurfélagi American Airlines, eins stærsta flugfélags landsins, um 25 prósent. Dow Jones-hlutabréfavísitalan lækkaði um 1,16 prósent og Nasdaq-vísitalan um 0,81 prósent.
Mest lesið Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira