Hvarf iPhone úr vefverslunum talið vita á nýjan síma Atli Steinn Guðmundsson skrifar 12. maí 2008 20:00 MYND/Apple
Hinn vinsæli iPhone-sími frá Apple, sem selst hefur eins og heitar lummur, er nú uppseldur í vefverslunum beggja vegna Atlantsála, í Bretlandi og Bandaríkjunum. Telja sumir þetta órækt merki þess að ný gerð símans birtist á mörkuðum von bráðar og verði sá búinn hraðvirkari nettengingu. Hafa þessar væntingar meðal annars orðið til þess að hlutabréf í Apple hækkuðu um 3% í síðustu viku. Natalie Kerris, talsmaður Apple, sagði það rétt að iPhone-birgðirnar væru á þrotum og vildi ekki gefa ákveðnar yfirlýsingar um hvenær bætt yrði úr því. Þeir sem telja símaþurrðina forleik þess að ný vara líti dagsins ljós búast fastlega við að Steve Jobs, forstjóri Apple, afhjúpi þetta sköpunarverk sitt á þróunarráðstefnu Apple 9. júní næstkomandi. Jobs hefur spáð því að 10 milljónir iPhone-síma seljist áður en árið er úti. Greiningarsérfræðingurinn Gene Munster telur nýja símann verða búinn iPod-spilara og bjóða upp á mun hraðvirkari nettengingu en nú þekkist með notkun svokallaðs þriðjukynslóðarnets. Hægt verði að kveikja og slökkva á þessari tengingu að vild en notkun hennar gangi hraðar á rafhlöðu símans. Gert er ráð fyrir að Singapore Telecommunications, stærsta símafyrirtæki Suðaustur-Asíu, bjóði núverandi iPhone-síma á fjórum mörkuðum í Asíu síðar á árinu. Bloomberg greindi frá.
Mest lesið Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ Viðskipti erlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Neytendur SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Viðskipti erlent EFTA-ríkin gera fríverslunarsamning við Mercusor-ríkin Viðskipti innlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Viðskipti innlent Samruni fyrirtækja: „Það sem ekki þarf að vera leyndarmál er ekki leyndarmál“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira