Hrun AIG getur valdið alvarlegum dómínó-áhrifum 16. september 2008 12:28
Ef tryggingarfélagið AIG verður gjaldþrota gæti slíkt valdið alvarlegum dómínó-áhrifum um allan heim. Þetta kemur fram í úttekt um málið á Bloomberg-fréttaveitunni í dag. AIG á í verulegum erfiðleikum þessa stundina og sárvatnar fjármagn af stærðargráðunni 40 til 75 milljarða dollara eða allt að rúmlega 6750 milljarða kr. AIG hefur farið fram á 40 milljarða dollara neyðarlán hjá Seðlabanka Bandaríkjanna og á í samningaviðræðum um 70 til 75 milljarða dollara lán hjá Goldman Sachs og JP Morgan. Það bætti ekki ástandið að bæði Moody´s og Standard & Poors hafa lækkað lánshæfismat AIG um þrjá flokka niður í A-. Þessi lækkun að sögn Bloomberg er síðasti skjálftinn af mörgum sem skekið hafa fjármálaheiminn vestanhafs að undanförnu. Boomberg segir að lækkunin á lánshæfismati AIG geti valdið því að lánadrottnar innkalli strax 13 milljarða dollara af skuldum AIG og auki þar með gífurlega hinn mikla þrýsting sem þegar er á stjórn AIG að leysa lausafjárvanda félagsins. Sem stendur ber AIG ábyrgð á tryggingum á lánum að upphæð 441 milljarður dollara og ef félagið fer á hausinn eru þessar trygginar og lánin í uppnámi. Slíkt gæti skapað fyrrrgreind dómínó-áhrif. Hlutabréf í AIG hafa verið í frjálsu falli undanfarna daga og eru komin niður í rétt rúma 2 dollara eftir að þau féllu um 61% í gær. Frá því að undirmálslánakreppan hófst hefur AIG tapað 93% af markaðsvirði sínu.
Mest lesið Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira