Viðskipti erlent

Dregur úr hættu á mikilli niðursveiflu í Bandaríkjunum

MYND/AP

Hættan á mikill niðursveiflu í Bandaríkjunum hefur minnkað töluvert á síðasta mánuði segir Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna.

Á ráðstefnu bankmanna í Massachusetts í Bandaríkjunum sagðist Bernanke telja að stýrivaxta- og skattalækkanir þar í landi hefðu haft áhrif og unnið gegn erfiðleikum sem meðal annars má rekja til undirmálslánakreppunnar sem upp kom í fyrra.

Atvinnuleysi hefur aukist mjög í Bandaríkjunum að undanförnu en Bernanke telur að aðgerðir stjórnvalda vinni gegn því. Hann sagði þó að hækkandi orkuverð, þar á meðal á eldsneyti, gæti stuðlað að aukinni verðbólgu í landinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×