Barbie ber sigurorð af Bratz í dómsalnum 18. júlí 2008 15:05 Bratz.
Leikfangaframleiðandinn Mattel vann málaferli gegn MGA fyrirtækinu sem framleiðir Bratz dúkkurnar vinsælu. Dómstóll í Kaliforníu úrskurðaði að hugmyndasmiðurinn að dúkkunum, Carter Bryant, hafi verið við störf hjá Mattel þegar hugmyndin að dúkkunum fæddist. Dómurinn á eftir að úrskurða um skaðabætur handa Mattel en ljóst er að þær geta numið milljónum bandaríkjadala enda nemur hagnaður af sölu dúkkanna um fimm hundruð milljónum dala á ári. Það jafngildir vel á fjórða tug milljarða íslenskra króna. Þá gæti farið svo að MGA þyrfti að hætta framleiðslu á dúkkunum en Mattel hefur fullyrt að Bratz dúkkurnar séu byggðar á hönnun Bryants frá því að hann var samningsbundinn Mattel. Bryant starfaði hjá Mattel frá 1995 til apríl 1998 og síðan aftur frá janúar 1999 til september árið 2000 og fullyrðir MGA að Bryant hafi fengið hugmyndina að dúkkunum á milli starfstímabilanna tveggja. Hlutabréf í Mattel hækkuðu um 4,4% eftir að dómurinn féll en salan hjá þessu stærsta leikfangaframleiðenda heims, sem m.a. framleiðir Barbie dúkkurnar, hefur farið ört minnkandi undanfarin misseri. Sem dæmi má nefna að sala á Barbie dúkkum í Bandaríkjunum minnkaði um meira en fjórðung milli apríl og júní á þessu ári.
Mest lesið Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Neytendur Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Viðskipti erlent Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Viðskipti innlent Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Viðskipti erlent Fleiri fréttir Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira