Viðskipti erlent

Vangaveltur um sölu á JJB Sports og afskráningu

Hlutir í JJB Sports hækkuðu verulega í morgun í kjölfar vangaveltna um að félagið yrði selt og síðan afskráð af markaði. Exista á rúm 14% í félaginu.

Hækkun í morgun nam 7,1% og er sú mesta síðan í janúar s.l. JJB Sports eru næststærsta verslunarkeðja Bretlands en Exista og Chris Ronnie keyptu saman 29% hlut í því fyrir ári síðan.

Að sögn Bloomberg fréttaveitunnar vill Chris Ronnie nú kaupa félagið og selja líkamsræktarstöðvar þess til að fjármagna yfirtökuna.

Sem stendur er JJB Sports að loka um 20% af verslunum sínum til að auka arðsemi og hagnað félagsins.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×