Nokia fellur á hlutabréfamörkuðum 11. mars 2008 17:14 MYND/AFP
Hlutabréf í Nokia féllu í verði um tæp fimm prósent eftir að Texas Instruments, annar stærsti framleiðandi örflaga í farsíma, lækkaði áætlanir fyrir hagnað og tekjur fyrir fyrsta ársfjórðung. Fram kemur í hálffimmfréttum Kaupþings að forvígismenn Texas Instruments hafi sagt að pantanir á örflögum sem notaðar eru í símtæki, sem m.a. hala niður tónlist, yrðu minni en vænst hefði verið. Lásu fjárfestar tilkynninguna með þeim hætti að Nokia, sem stærsti viðskiptavinur Texas Instruments, væri á bak við afkomuviðvörunina. Við þetta bættist að þýski bankinn NRW Bank, banki í eigu þýska sambandslýðveldisins Nordrhein-Westfalen, hefur krafið Nokia um yfir sex milljarða króna endurgreiðslu á láni sem félagið fékk frá bankanum þegar það byggði verksmiðju í Bochum. Verksmiðjunni hefur verið lokað. Bent er á að Nokia hafi hækkað um 70 prósent á hlutabréfamarkaði í fyrra en hins vegar hefur félagið fallið um 23 prósent það sem af er þessu ári, þar af um fimmtung á tveimur vikum.
Mest lesið „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira