Visa hyggur á risavaxið frumútboð á hlutabréfum 26. febrúar 2008 10:36
Stærsta greiðslukortafyrirtæki heims, Visa, hyggst fara í frumútboð á hlutabréfum sínum vegna ótta við að lánsfjárkrísan á alþjóðamörkuðum muni draga úr kortaveltu og koma þannig niður á hagnaði fyrirtækisins. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að Visa hefur sótt um að selja 406 milljónir hluta á genginu 37-42 Bandaríkjadalir. Jafnframt er hugsanlegt að fyrirtækið myndi selja 40,6 milljónir hluta til viðbótar til að mæta eftirspurn sem þýðir að Visa gæti aflað allt að 18,8 milljarða dala í útboðinu. Í íslenskum krónum er þessi upphæð nær 1.300 milljarðar. Aldrei í sögunni hefur víðlíka fjárhæð verið aflað í frumútboði, en símafyrirtækið AT&T aflaði 10,6 milljarða dala árið 2000. Vera kann að fjárfestar vonist til að útboð Visa gangi jafn vel og útboð keppinautarins MasterCard í maí 2006, en verð hlutabréfa í MasterCard hefur meira en fimmfaldast síðan þá. Hinsvegar er tímasetning útboðs Visa talin áhættusöm nú þegar niðursveifla virðist framundan í hagkerfi Bandaríkjanna. Spurn eftir frumútboðum hefur dalað og það sem af er ári hefur 43% minna verið aflað í slíkum útboðum vestan hafs en á sama tímabili í fyrra.
Mest lesið „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira