Innlent

Lúðvík ósammála ráðherra um dómaraskipan

MYND/Stefán

Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, er ósamála Árna Mathiesen, settum dómsmálaráðherra, í dómaramálinu og hefur átt hreinskiptar umræður við hann um það. Þetta kom fram í máli þingmannsins við upphaf þingfundar í dag.

Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, kvaddi sér hljóðs undir liðnum störf þingsins og innti Lúðvík eftir skoðun hans á málinu.

Vísaði hún til þess að Lúðvík hefði tjáð sig um málið opinberlega og það hefði mátt skilja á honum að honum mislíkaði hvernig staðið var að því að veita dómaraembættið. Sagði Siv að í framhaldi af ósanngjörnum og ósvífnum orðum Árna Mathiesen í Katljósi í gær væri fróðlegt að heyra hvort Lúðvík væri sammála ráðherra eða dómnefndinni í málinu, en dómnefndin hefur gagnrýnt ráðherra fyrir framgöngu hans í málinu. Þá spurði hún einnig hvort hann myndi beita sér fyrir því að frumvarp hans um breytingar á skipan hæstaréttardómara næði fram að ganga. Sjálfstæðismenn væru einir á móti því en meiririhluti væri fyrir því á þingi.

Lúðvík Bergvinsson svarað því til að hann myndi að sjálfsögðu beita sér fyrir því að frumvarpið myndi ganga fram því það væri mikilvægt fyrir Hæstarétt sem virtasta dómstól landsins. Þá sagðist hann hafa átt hreinskiptar og opnar viðræður Árna M. Mathiesen um hina umdeildu dómaraskipan. Það gerðu menn í samstarfi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins, ættu opin samtöl. Sagðist Lúðvík ekki sammála mati ráðherra en benti á að hann þekkti ekki frekar en aðrir í þaula umsögn dómnefndarinnar.

Birgir Ármannson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að málefnalega hefði verið staðið að skipuninni. Þá sagðist hann ekki fylgjandi því að færa skipan dómara inn á svið Alþingis. Það ætti ekki að gera hana að pólitísku bitbeini og yrði ekki skipuninni til framdráttar.

Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri - grænna, sagði enga vanþörf á að endurskoða reglur og lög um skipan dómara. Benti hann á í kjölfar orða Lúðvíks að þingmenn stjórnarflokkkanna bæru ábyrgð á ráðherrunum og ákvörðunum þeirra. Því vaknaði sú spurning hvort fleiri þingmenn Samfylkingarinnar væru ósammála ráðherra og hvort ráðherra nyti nægilegs trausts til að halda áfram störfum. Sagði Árni Þór að ákvörðun ráðherra væri að hans mati ómálefnaleg og ólögmæt.

Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagðist hafa tekið dómaraskipan upp í stjórnarskrárnefnd. Hann teldi að skipan dómara ætti að fara fram með atkvæðagreiðslu á Alþingi og þar þyrfti tvo þriðju atkvæða.

Fleiri stjórnarandstöðuþingmenn tóku til máls og gagnrýndu settan dómsmálaráðherra harðlega fyrir framgöngu hans í málinu en þingmenn Sjálfstæðisflokksins sögðu ráðherrann hafa staðið rétt að málum. Niðurstaða dómnefndar um hæfni umsækjenda væri ekki bindandi fyrir ráðherra.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×