Innlent

Telur ráðherra hafa verið innan valdaheimilda sinna

MYND/Vilhelm

Geir H. Haarde telur að bæði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og Árni Mathiesen, settur dómsmálaráðherra, hafi verið vel innan sinna valdheimilda þegar þeir hafi veitt þremur einstaklingum embætti nýlega. Hann átelur orð Sigurðar Líndal lagaprófessors í Fréttablaðinu í dag um dómaraskipan Árna. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á alþingi í dag.

Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri - grænna, tók málið upp og benti á að umræddar embættisveitingar hefðu verið mjög umdeildar. Átti hann þar við skipun nýrra orkumálastjóra og ferðamálastjóra og skipan dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Austurland.

Minntist Árni sérstaklega á skipun Þorsteins Davíðssonar í embætti héraðsdómara og sagði að geðþóttavald ráðherra mætti ekki ráða því hverjir væru skipaðir í embætti heldur þyrfti að byggja á málefnalegum sjónarhornum.

Vísaði Árni til orða Sigurðar Líndal lagaprófessors í Fréttablaðinu í dag sem sagði: „Hér skín í taumlausa vildarhyggju þar sem einungis er áskilið að lög séu sett með formlega réttum hætti og þeim beri að framfylgja með valdi hvert svo sem efni þeirra er. Valdboðið er sett í öndvegi; annað látið víkja. Með þetta að leiðarljósi er alræði og geðþótta opnuð leið og eru nærtækust dæmin frá Þýzkalandi eftir 1930."

Vild Árni Þór heyra hvað forsætisráðherra fyndist um embættisveitingar ráðherranna. Spurði hann hvort ráðherrar hefðu takmarkalausa heimild til að valta yfir álit nefnda og hvort ráðherra væri til í að beita sér svo ráðherrar misbeittu ekki valdi sínu.

Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði ekkert nýtt að embættisveitingar hér á landi væru umdeildar og slík mál hefðu komið við alla flokka. Í þessum þremur tilvikum teldi hann að ráðherrarnir hefðu verið vel innan sinna valdheimilda og embættisveitingar væru unnar eftir bestu sannfæringu. Þá sagði hann málflutning Sigurðar Líndals honum til minnkunar.

Sagði Geir enn fremur að ráðherra bæri ábyrgð á skipununum og yrði að beita eigin dómgreind. Iðnaðaráðherra hefði að hans mati stuðst við gild rök og sama ætti við um Árna Mathiesen, settan dómsmálaráðherra. Sagði hann matsnefndir ekki eiga að eiga síðasta orðið í þessum efnum. Benti hann á að hann hefði sjálfur sætt ámæli fyrir skipan hæstaréttardómara sem settur dómsmálaráðherra en enginn hefði kvartað undan störfum þeirra.

Samfylkingin anar út í spillinguna með Sjálfstæðisflokknum

Árni Þór sagðist harma að ráðherra hefði ekki tekið afdráttarlausa afstöðu með lýðræðinu. Það kæmi ekki óvart að sjálfstæðismenn væru heillum horfnir í eigin vef þar sem hagsmunir almennings væru fyrir borð bornir. Þá undraðist Árni að Samfylkingin skyldi ana út í spillinguna með Sjálfstæðisflokknum, sérstaklega í ljósi frægrar Borgarnesræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Spurði hann ráðherra hvort hann væri tilbúinn að setja reglur þannig að geðþóttavaldi ráðherra yrðu settar nauðsynlegar reglur.

Geir H. Haarde svaraði því til að hann teldi ekki að þessi þrjú mál gæfu tilefni til þess að breyta málsmeðferð sérstaklega. Hann teldi óeðlilegt að dómarastéttin hefði sjálfdæmi um það hvaða menn veldust inn í stéttina og það yrði að vera þannig að hið pólitíska vald kæmi að skipuninni. Þá sagði hann út í hött að halda því fram að hann hefði tekið afstöðu gegn lýðræðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×