Blair í hlutastarf hjá JP Morgan 10. janúar 2008 10:57 MYND/Reuters
Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur verið ráðinn til bandaríska bankans JP Morgan sem ráðgjafi í hlutastarfi. Eftir því sem breska blaðið Finacial Times greinir frá mun Blair veita bankanum ráðgjöf á sviði stjórnmála og áætlanagerðar og taka þátt í viðburðum sem bankinn skipuleggur fyrir viðskiptavini sína. Ekki liggur fyrir hversu mikið Blair fær í laun fyrir starfið en Finacial Times hefur eftir ráðningarþjónustu í New York að þau væru líklega yfir einni milljón dollara eða rúmar 60 milljónir króna á ári. „Það eru aðeins nokkrir menn í heiminum sem hafa þá þekkingu og þau sambönd sem hann hefur," segir Jamie Dimon, stjórnarformaður JP Morgan. Sjálfur segir Blair í samtali við Finacial Times að hann hafi alltaf haft áhuga á viðskiptum og alþjóðavæðingu. Hann býst við að taka að sér fleiri slík verkefni fyrir önnur fyrirtæki en hann gegnir einnig sendifulltrúa í málefnum Miðausturlanda. Það er ekki óalgengt að fyrrverandi stjórnmálamenn á alþjóðavettvangi gerist ráðgjafar fyrir stór fyrirtæki en bæði forveri Blairs í embætti, John Major, og George Bush eldri voru til að mynda ráðgjafar bandaríska félagsins Carlyle. Þá hafa stjórnmálamenn oft töluvert upp úr því að ferðast um og halda ræður og segir Financial Times að Blair hafi fengið 500 þúsund dollara, um 30 milljónir króna, fyrir að halda ræðu í Kína í haust.
Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Viðskipti innlent Flugmenn og Icelandair funda á morgun Viðskipti innlent Icelandair hefur flug til Qaqortoq Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira