Sharon Stone og moskítónetin Óli Tynes skrifar 2. janúar 2008 14:31 Jón Björgvinsson ásamt vopnuðum skæruliðum í Afríku.
Neyðaraðstoð er flókið fyrirbæri. Stundum væri betur heima setið en af stað farið. Jón Björgvinsson, kvikmyndatökumaður sem er búsettur í Sviss fjallar aðeins um þetta í tímaritinu Lífsstíll. Jón hefur sérhæft sig í kvikmyndatökum á svæðum þar sem neyð ríkir, hvort sem er af manna völdum eða náttúrunnar. Í hópi erlendra kollega er hann kallaður "Master of Disaster." Sharon Neyðaraðstoð er yfirleitt gefin af góðum hug. Leikkonunni Sharon Stone gekk gott eitt til þegar hún var gestur á leiðtogafundi í Sviss. Hún sneri umræðum um Afríku upp í fjársöfnun til að senda moskítónet til Tansaníu. Sharon krosslagði langa fótleggina og safnaði einni milljón dollara á fimm mínútum. Þetta var hin opinbera saga. Það var ekki sagt frá því að þetta varð allt hið mesta klúður. Peningarnir skiluðu sér illa og einnig netin til Tansaníu. Sagt er að mestu af þeim netum sem þó voru keypt hafi verið stolið. Þau hafi þó að skilað sér á mörkuðum í Tansaníu. Þá var hinsvegar búið að sauma úr þeim brúðarkjóla. Sem var eins gott fyrir heimamenn, segir Jón Björgvinsson. Ef Stone hefði kynnt sér málið eitthvað hefði hún komist að raun um að það er nóg til af moskítónetum í Tansaníu. Þau hafa verið framleidd þar í landi árum saman. Ef allt í einu hefðu komið ókeypis moskítónet fyrir milljón dollara hefði það verið mikið áfall fyrir hina innlendu framleiðslu. Hlý líkklæði En það eru ekki bara einstaklingar sem hlaupa á sig. Þegar 30 þúsund manns fórust í jarðskjálfta í Íran á jólum árið 2003 lentu líka 80 þúsund manns á vergangi. Það var vetur og það var kalt. Það var því ekkert óeðlilegt við að ullarteppi (meðal annars frá Íslandi) væru í þeim flugvélaförmum af neyðaraðstoð sem send var til landsins. Það sem fólkinu var efst í huga var hinsvegar að jarðsetja sína látnu. Hinir látnu eru samkvæmt venju sveipaðir í hvít líkklæði. Ef einhverjum hefði dottið í hug að senda helling af hvítu lérefti til Írans hefði það sparað mikla peninga. Og ullarteppin hefðu þá getað yljað fólki í stað þess að vera grafin með hinum þrjátíu þúsund látnu. Dýrkeyptar baunir Eftir rannsóknir ákvað virt hjálparstofnun að hjálpa hungruðum flóttamönnum í Afríku með því að senda þeim nýja tegund af baunum. Þær voru næringarríkari en þær baunir sem fram að því höfðu verið sendar. Sex mánuðum síðar varð að hætta þessari aðstoð. Það hafði gleymst að taka inn í dæmið að nýju baunirnar þurftu mun meiri suðu en þær gömlu. Og því meira eldsneyti. Flóttamennirnir voru búnir að brenna upp allt skóglendi í kringum sig og voru vesælli en nokkru sinni. Vatn í elginn Í flugvél sem Jón Björgvinsson flaug með til Sri Lanka voru stæður af flöskum með vatni. Í Batticola sem varð einna verst úti í flóðunum var átöppunarverksmiðja fyrir vatn eitt af fáu sem slapp við skemmdir. Auk þess var þetta regntíminn og nóg að setja út fötu til þess að fá ferskt vatn. Í flugvélinni var einnig mikið af skófatnaði. Innfæddir nota hinsvegar ekki annað skófatnað en í mesta lagi sandala.
Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira