Pólskir blaðberar gerðu aðsúg að Morten Lund 1. september 2008 10:18
Kalla þurfti lögregluna til þegar Morten Lund eigandi Nyhedsavisen ætlaði að fund með starfsmönnum útgáfunnar í Kaupmannahöfn morgun. Pólskir blaðberar sem misst hafa vinnu sína gerðu aðsúg að Lund sem slapp við illan leik inn á skrifstofur blaðsins. Í ljós hefur komið að hvorki 50 blaðamenn Nyhedsavisen né um 300 blaðberar þess fengu greidd laun sín fyrir ágústmánuð í morgun. Og þegar Morten Lund er spurður um hvernig hann ætli að bjarga þessum launagreiðslum verður fátt um svör að því er fram kemur í dönskum fjölmiðlum. Blaðberarnir eru að stærstum hluta frá Austur-Evrópu, einkum Póllandi. Dauði Nyhedsavisen hefur verið helsta frétt morgunsins í dönskum fjölmiðlum. Í Börsen segir m.a. að samkeppnisaðilum blaðsins sé létt. Raunar skín í gegnum umfjöllun Börsen og Business.dk að eigendur stærstu dagblaða Danmerkur geti vart leynt kæti sinni yfir því að Nyhedsavisen heyri nú sögunni til. Sjálfur er Morten Lund í slæmu skapi í dag ef marka má færslur hans á netinu í morgun þar á meðal Facebook síðu hans. Þar segir hann: "Fuck ég varð að stoppa blaðið mitt - Ég hata, Hata, HATA að tapa."
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira