Viðskipti erlent

Mikill hagvöxtur í Afríkuríkinu Tanzaníu

Hagvöxtur í Afríkuríkinu Tanzaniu mun aukast um 7,8% í ár og ná upp í 9,2% að þremur árum liðnum.Þetta kom fram í máli fjármálaráðherra landsins í ræðu á þingi í dag.

 

Það er einkum vöxtur í fjarskiptum, fjármálaþjónustu og byggingariðnaði sem knýr þennan mikla hagvöxt, raun einn þann mesta í Afríku í dag.

 

Tanzania er að stærstum hluta landbúnaðarþjóð en þar er einnig viðamikil námuvinnsla, meðal annars á demöntum og gulli. Hefur verð á hrávörumörkuðum heimsins því ýtt ennfrekar undir mikinn hagvöxt í landinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×