Kynvilltur stóðhestur kostar eigendur sína milljarða kr. 4. júlí 2008 10:04
Menn vita ekki hvort hann er kynvilltur, kyndaufur eða bara húðlatur. Allavega hafa eigendur stóðhestsins War Emblem séð á eftir milljörðum kr. í tapaða folatolla því hesturinn vill ekki fjölga sér. Þegar stóðhestastöðinni Shadai í Japan tókst að kaupa War Emblem árið 2003 þóttust menn þar á bæ hafa himinn höndum tekið. Hesturinn hafði unnið hið þekkta Kentucky Darby veðhlaup árið áður og eigendur Shadai töldu að þeir myndu hagnast mikið á folatollum á næstu árum. War Emblem hafði aðrar áætlanir á prjónunum. Árið 2003 köstuðu aðeins sjö af 350 hryssum, sem hesturinn var kynntur fyrir, folöldum. Ári seinna voru það 35 af 500 hryssum. Árið 2005 kom ekki eitt einasta folald undan honum. Þar sem War Emblem er af hreinræktuðu ensku kyni má ekki nota sæði hans í hryssur nema á náttúrlegann hátt, það er hann verður sjálfur að sjá um sæðisgjöfina. Þar sem War Emblem hefur engan áhuga á að fylja hryssur hefur Shadai-stöðin tapað 55 milljón dollara eða nær 5 milljörðum kr. í glötuðum folatollum. Og við það bætist svo kaupverðið á sínum tíma sem nam 17 milljónum dollara.
Mest lesið Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira