Mál Yahoo! og Microsoft í járnum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 18. júlí 2008 08:12 Jerry Yang. MYND/AP
Tilraunir auðkýfingsins Carls Icahns til að kaupa hugbúnaðarfyrirtækið Yahoo! í samvinnu við Microsoft eru að margra mati orðnar að óskiljanlegri flækju. Í fyrradag sendi Yahoo! öllum hluthöfum sínum bréf þar sem þeir voru beðnir að láta ekki blekkjast af fjölmiðlaáróðri Microsoft og Carls Icahns sem látið hafa í veðri vaka við alla fjölmiðla sem heyra vilja að Yahoo! sé komið að fótum fram og beri ekki barr sitt í samkeppninni við Google og fleiri risa sem haslað hafa sér völl á leitarvélamarkaðnum síðustu misseri. Jerry Yang, forstjóri og stofnandi Yahoo!, skellir skollaeyrunum við málflutningi tvíeykisins sem þyrstir svo mjög í að kaupa veldi hans og vísar í fleyg ummæli Sean Connery í kvikmyndinni The Untouchables frá 1987 um að ekki þyki góð latína að mæta með hníf í byssubardaga. Yang segist sannfærður um að það eina sem vaki fyrir Icahn með kaupum á Yahoo! sé að selja Microsoft fyrirtækið en nýjustu skilaboðin frá Microsoft-mógúlnum Bill Gates eru á þá leið að fyrirtæki hans sé meira en tilbúið að kaupa Yahoo! - þó með því eina skilyrði að Icahn komi fyrst Jerry Yang og allri stjórn hans frá völdum þar. Spyrjum að leikslokum.
Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira