Telur ráðherra hafa verið innan valdaheimilda sinna 15. janúar 2008 14:20 MYND/Vilhelm
Geir H. Haarde telur að bæði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og Árni Mathiesen, settur dómsmálaráðherra, hafi verið vel innan sinna valdheimilda þegar þeir hafi veitt þremur einstaklingum embætti nýlega. Hann átelur orð Sigurðar Líndal lagaprófessors í Fréttablaðinu í dag um dómaraskipan Árna. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á alþingi í dag. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri - grænna, tók málið upp og benti á að umræddar embættisveitingar hefðu verið mjög umdeildar. Átti hann þar við skipun nýrra orkumálastjóra og ferðamálastjóra og skipan dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Austurland. Minntist Árni sérstaklega á skipun Þorsteins Davíðssonar í embætti héraðsdómara og sagði að geðþóttavald ráðherra mætti ekki ráða því hverjir væru skipaðir í embætti heldur þyrfti að byggja á málefnalegum sjónarhornum. Vísaði Árni til orða Sigurðar Líndal lagaprófessors í Fréttablaðinu í dag sem sagði: „Hér skín í taumlausa vildarhyggju þar sem einungis er áskilið að lög séu sett með formlega réttum hætti og þeim beri að framfylgja með valdi hvert svo sem efni þeirra er. Valdboðið er sett í öndvegi; annað látið víkja. Með þetta að leiðarljósi er alræði og geðþótta opnuð leið og eru nærtækust dæmin frá Þýzkalandi eftir 1930." Vild Árni Þór heyra hvað forsætisráðherra fyndist um embættisveitingar ráðherranna. Spurði hann hvort ráðherrar hefðu takmarkalausa heimild til að valta yfir álit nefnda og hvort ráðherra væri til í að beita sér svo ráðherrar misbeittu ekki valdi sínu. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði ekkert nýtt að embættisveitingar hér á landi væru umdeildar og slík mál hefðu komið við alla flokka. Í þessum þremur tilvikum teldi hann að ráðherrarnir hefðu verið vel innan sinna valdheimilda og embættisveitingar væru unnar eftir bestu sannfæringu. Þá sagði hann málflutning Sigurðar Líndals honum til minnkunar. Sagði Geir enn fremur að ráðherra bæri ábyrgð á skipununum og yrði að beita eigin dómgreind. Iðnaðaráðherra hefði að hans mati stuðst við gild rök og sama ætti við um Árna Mathiesen, settan dómsmálaráðherra. Sagði hann matsnefndir ekki eiga að eiga síðasta orðið í þessum efnum. Benti hann á að hann hefði sjálfur sætt ámæli fyrir skipan hæstaréttardómara sem settur dómsmálaráðherra en enginn hefði kvartað undan störfum þeirra. Samfylkingin anar út í spillinguna með Sjálfstæðisflokknum Árni Þór sagðist harma að ráðherra hefði ekki tekið afdráttarlausa afstöðu með lýðræðinu. Það kæmi ekki óvart að sjálfstæðismenn væru heillum horfnir í eigin vef þar sem hagsmunir almennings væru fyrir borð bornir. Þá undraðist Árni að Samfylkingin skyldi ana út í spillinguna með Sjálfstæðisflokknum, sérstaklega í ljósi frægrar Borgarnesræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Spurði hann ráðherra hvort hann væri tilbúinn að setja reglur þannig að geðþóttavaldi ráðherra yrðu settar nauðsynlegar reglur. Geir H. Haarde svaraði því til að hann teldi ekki að þessi þrjú mál gæfu tilefni til þess að breyta málsmeðferð sérstaklega. Hann teldi óeðlilegt að dómarastéttin hefði sjálfdæmi um það hvaða menn veldust inn í stéttina og það yrði að vera þannig að hið pólitíska vald kæmi að skipuninni. Þá sagði hann út í hött að halda því fram að hann hefði tekið afstöðu gegn lýðræðinu.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fleiri fréttir Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Sjá meira