300 starfsmenn fjármálastofnanna handteknir í Bandaríkjunum 19. júní 2008 18:47 Utan við höfuðstöðvar Bear Stearns í New York. Starfsemi bankans hefur nú verið innlimuð í JP Morgan. Mynd/AFP
Bandaríska alríkislögreglan handtók í dag um þrjúhundruð starfsmenn fjármálastofnana, sem grunaðir eru um að hafa svikið út gríðarlegar upphæðir í fasteignalánum. Fyrir tveimur árum blómstraði fasteignamarkaðurinn í Bandaríkjunum. Fólk gat eignast þak yfir höfuðið þó það ætti ekki krónu. Mjög auðvelt var að fá fasteignalán. En það var maðkur í mysunni og nú er að koma í ljós að menn beittu miklum blekkingum til að fá lán út á fasteignir. Ljóst er að fjárfestingabankar á borð við Bear Stearns tóku þátt í blekkingunum, sem urðu til þess að fasteignamarkaðurinn hrundi með þeim afleiðingum að fjármálakreppa varð í Bandaríkjunum, sem hafði svo áhrif á markaði í Evrópu og Asíu. Alríkislögreglan handtók tvo yfirmenn Bear Stearns fjárfestingabankans í dag og þrjú hundruð aðra starfsmenn fjármálafyrirtækja. Í frétt New York Times um málið er talið að hér sé um að ræða aðeins toppinn á ísjakanum og ber þetta mál saman við það þegar risaolíufyrirtækið Enron hrundi til grunna vegna fjármálaspillingar.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira