Viðskipti erlent

United Airlines leggur 70 vélum og hættir lággjaldaflugi

United Airlines, annað stærsta flugfélagi í heiminum, ætlatr að leggja 70 af vélum sinum á næstunni. Jafnframt ætlar félagið að hætta lággjaldaflugi sínu sem rekið hefur verið undir merkinu Ted.

Þessi áfrom verða að veruleika seinna í ár og bætast við þann niðurskurð sem boðaður var í apríl s.l. hjá félaginu. Þá var tilkynnt að 30 vélum yrði lagt og 1.100 starfsmönnum sagt upp.

Fjallað er um málið á Bloomberg fréttaveitunni sem hefur upplýsingar sínar eftir ónafngreindum heimildum. Þar segir að miklar hækkanir á eldsneyti undanfarna mánuði séu helsta ástæðan fyrir þessum mikla niðurskurði hjá félaginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×