Útibúa og eignasala WaMu dugar líklega ekki 12. september 2008 08:46 Útibú WaMu MYND/AFP
Hlutabréf í Washington Mutual hafa hrunið í verði undanfarna daga, enda óttast fjárfestar að fyrirtækin séu bæði á barmi gjaldþrots. Þó bréf félagsins hafi hækkað um 22 prósent í viðskiptum í gær er það lítil huggun, því bréfin hafa engu að síður lækkað um 44 prósent síðan í upphafi vikunnar, og 92 prósent síðan fyrir ári síðan. Verðhækkun gærdagsins er fremur til marks um þá miklu óvissu sem nú ríkir um framtíð WaMu, og er ekki ósvipuð ævintýralegum verðsveiflum sem voru á bréfum í Fannie Mae og Freddie Mac undanfarna tvo mánuði. Á fimmtudag breytti Moodys mati sínu á WaMu, en skuldabréf bankans teljast nú "below investment grade". Skuldtryggingarálag bankans fór yfir 2000 punkta á miðvikudag, en greiningardeildir telja nú yfir 85 prósenta líkur á að bankinn verði gjaldþrota á næstu fimm árum. Gjaldþrot WaMu myndi hafa gríðarleg áhrif, og talið er að stjórnvöld líti svo á að hann sé "of stór" til að mega verða gjalþdrota. Washington Mutual hefur orðið ílla úti vegna húsnæðislána, og hefur gengið mjög ílla að afla nýs fjármagns, enda óttast fjárfestar að öll kurl séu enn ekki komin til grafar varðandi útlánatöp bankans. Eina lausn WaMu er því að selja eignir, en það kann að reynast erfitt, því talið er að bankinn eigi í raun engar eignir sem hægt sé að selja aðrar en útibúanet sitt. Stór hluti eiginfjár er bundinn í verðlausum og íllseljanlegum skuldvafningum.
Mest lesið Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Almannatenglar stofna fjölmiðil Viðskipti innlent Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Neytendur Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Samstarf Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira
Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent
Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent