Dregur úr hagvexti á Indlandi 29. ágúst 2008 11:16 Indverskur verðbréfasali. Vera má að hann sé nýbúinn að sjá nýjustu hagvaxtartölurnar. Mynd/AFP
Hagvöxtur hefur dregist saman á Indlandi, einu af þeim nýmarkaðslöndum þar sem vöxturinn hefur verið hvað mestur fram til þessa. Vöxturinn hefur ekki verið minni í þrjú ár. Hagvöxtur mældist 7,9 prósent á öðrum ársfjórðungi samanborið við 9,2 prósent á sama tíma í fyrra. Til samanburðar mældist hagvöxturinn 8,8 prósent á fyrsta fjórðungi ársins. Breska ríkisútvarpið hefur eftir indverskum hagfræðingum að hátt olíu- og matvöruverð samhliða háu stýrivaxtastigi muni draga frekar úr hagvexti það sem eftir lifi árs og fari hann á endanum í 7,5 prósent. Indverski seðlabankinn hefur hækkað stýrivexti jafnt og þétt til að koma böndum á verðbólguna. Vextirnir standa nú í níu prósentum á sama tíma og verðbólga mælist 12,4 prósent. Á sama tíma í fyrra mældist verðbólgan hins vegar einungis fjögur prósent, að sögn BBC.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira