Webber snýr aftur til Golden State 29. janúar 2008 09:48 Chris Webber og Don Nelson deildu hart hjá Golden State á sínum tíma. Þessi mynd er af þeim félögum árið 1993. Nordic Photos / Getty Images
Framherjinn Chris Webber hefur gefið það út að hann ætli að skrifa undir samning við Golden State Warriors í kvöld. Webber hóf feril sinn hjá liðinu árið 1993 en fór þaðan í fússi ári síðar eftir deilur við núverandi þjálfara liðsins, Don Nelson. Webber er 34 ára gamall og var síðast á mála hjá Detroit Pistons. Svo virðist sem Webber og Nelson séu búnir að grafa stríðsöxina, því Webber lýsti því yfir í viðtali við ESPN í nótt að ekkert væri því til fyrirstöðu að hann semdi við liðið sem fékk hann til sín eftir nýliðavalið árið 1993. Webber mun leika á algjörum lágmarkslaunum fyrir gamla liðið sitt og verður ætlað að auka breiddina í framherja- og miðherjastöðunni hjá liðinu. Don Nelson hafði áður lýst því yfir í viðtali að hann óttaðist að lið sitt væri ekki nógu gott fyrir átökin í úrslitakeppninni nema það fengi hinn reynda Webber til liðs við sig.
NBA Mest lesið Kemur alltaf í Þór Íslenski boltinn Extraleikarnir: Nablinn varð náfölur og ældi endalaust eftir keppni Körfubolti „Fyrirgefðu mamma“ Enski boltinn Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Fótbolti Sjáðu Albert í essinu sínu þrátt fyrir innbrotið Fótbolti Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Enski boltinn „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Handbolti Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Enski boltinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Handbolti Liðsfélagi Sveindísar spilaði sinn fyrsta leik eftir hjartastoppið Fótbolti Fleiri fréttir „Fínt að fá svona langa pásu á milli leikja“ Tvær breytingar á hópnum fyrir kvöldið Extraleikarnir: Nablinn varð náfölur og ældi endalaust eftir keppni Almar, Birgir Leifur og Friðrik Leó með í Marsfárinu Ómetanlegt fyrir nýliða að hafa þessa bræður Jón Axel drjúgur fyrir San Pablo í mikilvægum sigri Skrýtin ára yfir Val: „Svo kemur þetta og þá ferðu svolítið að efast“ „Þessi Kane er stórhættulegur“ ÍA 86-115 Tindastóll | Skagfirðingar ekki í vandræðum á Skaganum Stórleikur Elvars dugði ekki til sigurs Ræddu umtalaða sigurkörfu KR: „Þetta er rosalega heimskulegt“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 94-88 | Deildarmeistarar eftir magnaðan viðsnúning Fyrsta tapið á tímabilinu og Almar þarf nú að bíða og vona KR - Keflavík 107-105 | Keflvíkingar gáfu frá sér fimmta sætið „Hefðum unnið þá í framlengingunni í staðinn“ Uppgjörið:Njarðvík - Valur 110-78| Njarðvíkingar að kveikja á sér á hárréttum tíma Uppgjör: Álftanes - ÍR 89-93 | Álftanes að missa af en ÍR á leið í úrslitakeppnina Hákon: Þetta er svo ógeðslega gaman Þór Þ. - Ármann 74-79 | Ármenningar skildu Þórsara eftir í fallsæti Risa leikur í kvöld: „Einn af þeim stærri í sögu Þórs Þorlákshafnar“ Clark fór á kostum í fyrsta landsleiknum „Þetta er ógeðslegt starf“ Tryggvi með hæstu einkunn í flottum sigri Ævintýri Stólanna lauk á spennuleik Uppgjörið: Serbía - Ísland 92-66 | Stelpurnar okkar svæfðar í Serbíu Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Kristrún Ríkey í óvænt flug til Serbíu NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Sjá meira