Gjaldþrot fyrirtækja í Danmörku hafa aldrei verið fleiri 6. nóvember 2008 13:44
Gjaldþrot fyrirtækja í Danmörku hafa aldrei verið fleiri í sögunni en tvo síðustu mánuðina. Í október urðu þau 391 talsins og í september 350 talsins. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Danmerkur er aukningin á gjaldþrotum milli október nú og sama mánaðar í fyrra 71%. Flest gjaldþrotanna hafa verið hjá fyrirtækjum í byggingar- og verktakageiranum og þar hafa öll met verið slegin hvað fjöldann varðar. Í október urðu 70 fyrirtæki í þessum geir gjaldþrota og í september voru þau 67 talsins. Verslunargeirinn verður einnig illa úti í þessari gjaldþrotahrinu en fjöldi gjaldþrota fyrirtækja í þeim geira tvöfaldaðist milli september og október í ár. Gjaldþrotin urðu 20 talsins í september og 40 í október. Gjaldþrotin eru ekki svæðisbundin í Danmörku heldur jafnast út um allt landið en þó verður Norður-Jótland einna verst úti samkvæmt frétt á börsen.dk um málið. Ástæða þessara gjaldþrota er einfaldlega hið slæma efnahagsástand sem ríkir í Danmörku eins og nær öllum öðrum Evrópulöndum.
Mest lesið Einar hættir af persónulegum ástæðum Viðskipti innlent Öðruvísi starfsframi: „Davíð, getur þú mætt eftir 30 mínútur?“ Atvinnulíf Íslandsbanki og Skagi í formlegar samrunaviðræður Viðskipti innlent Óljóst hvort veðhafar fái nokkuð Viðskipti innlent „Væntanlega farnir að hefja næturvaktir hjá Samkeppniseftirlitinu“ Viðskipti innlent Birna Ósk nýr forstjóri Húsasmiðjunnar Viðskipti innlent Boeing sagt byrjað að þróa arftaka 737 max-þotunnar Viðskipti erlent Risagjalddagi vegna losunarheimilda daginn eftir gjaldþrot Viðskipti innlent Gengi Skaga rýkur upp Viðskipti innlent Eftirlitsstofnanir vara við sýndareignum Neytendur Fleiri fréttir Boeing sagt byrjað að þróa arftaka 737 max-þotunnar Rúmlega þriðjungs samdráttur í olíuvinnslu í Rússlandi Burger King opnar fyrsta staðinn á Grænlandi Eigandinn hættir sem forstjóri Trump setur tolla á lyf, vörubíla og húsgögn Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Ben kveður Jerry Nálgast samkomulag um TikTok Breytingar hjá Microsoft koma fyrirtækinu hjá sektum Ellison klórar í hælana á Musk Danski lyfjarisinn að baki Ozempic segir upp þúsundum manna Útvaldi sonurinn tryggir sér stjórn Murdoch-veldisins Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Sjá meira