Allt að 800 metra biðraðir eftir nýja iPhone-símanum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 12. júlí 2008 11:41
Gloppur í hugbúnaði nýja iPhone-símans frá Apple og takmarkað upplag hans í mörgum verslunum sló marga kaupendur út af laginu í gær þegar sala á gripnum hófst í 22 löndum en hans hefur verið beðið með eftirvæntingu síðan í vor þegar fréttir tóku að berast af nýjum iPhone-síma. Búist er við að á fimmtu milljón iPhone síma seljist á fyrsta ársfjórðungnum eftir markaðssetningu símans og í Tókýó voru komnar allt að 800 metra langar raðir fyrir utan símaverslanir í gær. Bilun í iTunes-þjónustu Apple varð til þess að mörgum nýbökuðum eigendum símans var ekki unnt að sækja sér tónlist og myndbönd en iTunes er stafrænt margmiðlunarforrit sem notað er til að sækja, spila og flokka stafræna tónlist og myndbönd. Í Bretlandi heyrðust óánægjuraddir um að svokölluð sign-up þjónusta væri með hægvirkasta móti. Ekki náðist að standa undir eftirspurninni en í Japan, Þýskalandi, Kanada og Mexíkó og víða í Bandaríkjunum seldust símarnir upp á fyrsta degi í mörgum verslunum, áhugasömum kaupendum til ama. Símaverslun í Madrid brá á það ráð að gefa viðskiptavinum í biðröð við verslunina stuttermaboli til að skýla þeim fyrir miskunnarlausu sólskini en þar fór hiti vel yfir 30 gráður í gær. Bloomberg greindi frá.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira