Viðskipti erlent

Bílaframleiðendur veðja á Kína

Mercedes Benz herjar á Kínamarkað eins og aðrir.
Mercedes Benz herjar á Kínamarkað eins og aðrir.

Bílaframleiðendur sem nú eru saman komnir á bílasýningu í Peking veðja á að þetta ár verði enn eitt sprengiárið á kínverska bílamarkaðnum. Kína er á skömmum tíma orðið að næst stærsta bílamarkaði í heiminum og keppast framleiðendur nú við að koma út bílum á markaðinn á sama tíma og samdráttur er á flestum öðrum markaðssvæðum.

Einn forsvarsmanna General Motors á sýningunni sagði að sá framleiðandi sem nái forskoti í Kína verði ráðandi á heimsmarkaði næsta aldarfjórðunginn. GM hafa átt í vandræðum undanfarið að anna eftirspurn í Kína en fyrirtækið er næst stærsti framleiðandinn á Kínamarkaði. GM reiknar með að söluaukning á þessu ári verði 16 prósent á öllum markaðnum en í fyrra seldust 6,3 milljónir bifreiða þar í landi og búist er við að 10 milljón ökutæki, trukkar og strætisvagnar meðtaldir, seljist í ár.

Þrátt fyrir þennan gríðarlega vöxt eru bifreiðaeigendur í Kína aðeins 44 af hverjum 1000 íbúum landsins. Á vesturlöndum eiga um 600 af hverjum 100 bifreið og 800 í Bandaríkjunum. Á síðasta ári óku 47 milljónir bifreiða á kínverskum götum og er það svipað hlutfall og var í Bandaríkjunum árið 1947. Það gefur því auga leið að þar er óplægður akur en bjartsýnustu framleiðendurnir reikna með því að á næstu árum eða áratugum verði hlutfall bíleigenda í Kína orðið svipað og þekkist í Evrópu.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×