Fiskvinnslan GPG Norge stefnir í gjaldþrot 29. maí 2008 12:30
Allar horfur eru á að fiskvinnslufyrirtækið GPG Norge verði lýst gjaldþrota á næstunni eða þá að fyrirtækið verði þvingað í þrot að því er fram kemur í blaðinu Fiskeren. Í raun er fyrirtækið sagt gjaldþrota vegna óuppgerðra launa og orlofs starfsmanna. Vefsíðan Interseafood greinir frá þessu og þar segir að GPG Norge sé í eigu íslenskra aðila. Fyrirtækið hefur verið með starfsemi í Karlsöy í Norður-Noregi þar sem 80 starfsmenn hafa unnið og einnig í Karmöyvær á Nordkapp þar sem 20 manns vinna. Engin vinnsla hefur verið á þessum stöðum frá 5. maí sl. þrátt fyrir að nú er sá árstími að nótaveiði á ufsa stendur hvað hæst og vinnsla ætti með öllu eðlilegu að vera í fiskvinnslum félagsins frá morgni til kvölds. Í frétt Fiskaren segir að stjórnendur Sparebanken Nord-Norge hafi misst þolinmæðina gagnvart eigendum GPG Norge og sett þeim úrslitakosti. Þeir vilja að farið verði að hlutafélagalögum en fyrst og fremst að hagsmunir bankans verði tryggðir sem best. Hvað starfsfólkið varðar þá segja trúnaðarmenn að þeir vilji að nýir eigendur taki við rekstrinum. Þeir upplýsa að framkvæmdastjóri GPG Norge hafi leynt þá upplýsingum og með því brotið gegn lögum. Fram kemur að það skipti starfsfólkið, sem nú er komið á atvinnuleysisbætur, miklu máli hvernig staðið verður að málum. Ef eigendur fyrirtækisins lýsi yfir gjaldþroti eða ef bankinn keyrir félagið í þrot þá fari launa- og orlofskröfur í forgang við uppgjör á þrotabúinu. Aðrar leiðir gætu falið í sér að kröfur starfsmanna færu aftarlega á listann yfir forgangskröfur.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira