Segir starfsmann Barclays hafa stolið af sér 40 milljónum punda 22. júní 2008 10:38 Við eitt af útibúum bankans í London
Háttsettur meðlimir Al Thani fjölskyldunnar í Katar hefur stefnt sjóðum Barclays bankans í hættu, með því að höfða mál á hendur bankanum vegna meintra fjársvika upp á 40 milljón pund eða um 6,4 milljarða króna. Al Thani fjölskyldan í Katar er ein ríkasta fjölskylda heims en skemmst er að minnast kaupa eins meðlimar hennar í íslenska fyrirtækinu Alfesca fyrir skömmu. Það er þó ekki sami aðili og hefur kært bankann. Sá telur að trassaskapur hjá bankanum hafi gert starfsmanni þar kleift að draga að sér um 4 milljónir punda á mánuði af persónulegum reikningi á Marbella. Ásakanirnar, sem tengjast millifærslum frá því í desember árið 2001 og febrúar árið 2003, eru útlistaðar enn frekar í skjölum fyrir spænskum dómstólum. Þó margar tilraunir hafi verið gerðar til þess að ná sáttum í málinu, býst sjeikinn við að geta sett þrýsting á Barclays bankann eftir yfirlýsingar þess efnis að yfirvöld í Katar (Qatar Investments Authorities) muni styðja fjögurra milljarða punda fjáöflunarverkefni bankans. QIA, sem er stjórnað af öðrum meðlimi Al Thani fjölskyldunnar, er einn af fjórum erlendum fjárfestum sem hafa verið nefndir í 4 milljarða punda fjáröflunarverkefni bankans. Kínverski þróunarbankinn, Temasek í Singapore og japanski fjármálarisinn Sumitomo Mitsui eru einnig nefndir í þessu sambandi. Ásakanir sjeiksins koma aðeins örfáum dögum áður en bankinn fer í að kynna fjáröflunarverkefnið fyrir breskum hluthöfum. Talið er að QIA viti ekki um ásakanirnar sem hafa til þessa verið einkamál bankans og þessa meðlims fjölskyldunnar. Barclays bankinn hefur ekki viljað tjá sig um þessar ásakanir.
Mest lesið „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Viðskipti innlent Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes Viðskipti innlent Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Neytendur Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Viðskipti innlent Sjónvarpseríur á samfélagsmiðlum og gjörbreytt notkun á Facebook og Instagram Atvinnulíf Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Viðskipti innlent Brú Talent kaupir Geko Consulting Viðskipti innlent Stjarna í 66 ár, myndabikar, húmor í þeim gömlu og jólasveinakennsla Atvinnulíf Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lofar að koma böndum á CNN Reyna fjandsamlega yfirtöku á Warner Bros. Kaup Netflix á hluta Warner Bros. gætu reynst „vandamál“ ESB sektar samfélagsmiðil Musk um milljarða Google birtir lista yfir vinsælustu leitarorðin Netflix í viðræðum um kaup á HBO frá Warner Bros Hringir viðvörunarbjöllum vegna samkeppni frá Google „Brunaútsala“ á hlutabréfum eftir eldsvoðann í Hong Kong Fjögurra billjóna hagnaður léttir fyrir fjárfesta Stefna Jóni Þorgrími vegna Rauða heftarans Segir engan óhultan ef gervigreindarbólan springur Trump fellir niður tolla á tugi matvæla Paramount, Comcast og Netflix vilja kaupa Warner Kári og Hannes stofna fyrirtæki: „Erum aðallega bara að velta fyrir okkur heiminum“ PlayStation 5 slær Xbox 360 við Reyna að halda sjaldgæfum málmum frá hernum Jensens Bøfhus lokað Samþykktu stærðarinnar launapakka Musks Græða á tá og fingri á svikum og prettum Fresta reynsluflugi rafmagnsflugvélar Segist engin deili kunna á rafmyntajöfri sem hann náðaði Sjá meira