Skuldatryggingaálag bankana heldur áfram að lækka 20. maí 2008 11:14
Skuldatryggingaálag á íslensku bankana og ríkissjóð hefur lækkað talsvert í kjölfar þeirra fregna að Seðlabankinn hefur með gjaldeyrisskiptasamningum við seðlabanka Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur tryggt sér aðgengi að 1,5 milljörðum evra. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að skuldatryggingaálag Kaupþings stendur nú í 430 púnktum og hefur lækkað um 30 púnkta síðan tíðindin bárust. Álag á skuldatryggingar Glitnis hefur lækkað úr 410 og í 365 púnkta og álag Landsbankans hefur farið niður um 75 púnkta og stendur nú í 185 púnktum. Þá hefur skuldatryggingaálag ríkissjóðs lækkað um 30 púnkta en lækkandi skuldatryggingaálag ætti einnig að auðvelda ríkissjóði beina erlenda lántöku til að styrkja gjaldeyrisforðann á viðunandi kjörum. Eins og kunnugt er tilkynnti forsætisráðherra að fleiri aðgerða að hálfu stjórnvalda og Seðlabankans sé að vænta en bein erlend lántaka þykir líklegust í því sambandi. Auk þess sem verulegar líkur eru á frekari gjaldmiðlaskiptasamningum, t.d. við Evrópska seðlabankann og Englandsbanka að því er segir í Morgunkorninu. Auk þess sem álagið fer nú lækkandi er ekki síður athyglisvert að bilið á milli kaup- og sölutilboða á eftirmarkaði með skuldatryggingaálag íslensku bankanna hefur farið minnkandi undanfarið. Þetta er til vitnis um aukna dýpt á þessum markaði sem eru jákvæðar fréttir.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira