Inspired Gaming í söluferli Atli Steinn Guðmundsson skrifar 25. maí 2008 11:27
Inspired Gaming, afþreyingarfyrirtæki að hluta í eigu FL Group sem rekur ýmiss konar veðmálastarfsemi, er komið í söluferli í kjölfar þreifinga af hálfu nokkurra áhugasamra kaupenda. Global Leisure Partners er fyrirtækjasöluaðili sem fenginn hefur verið til að stýra sölunni og meta tilboð sem berast. Við lokun markaða á föstudag stóð hluturinn í Inspired Gaming í 67 pensum, tæpum 96 krónum, en markaðsvirði fyrirtækisins er 48,8 milljónir punda, tæpir sjö milljarðar króna. Einhverjir spámenn eru þeirrar skoðunar að stjórn Inspired Gaming láti það ekki á minna en 160 pens hlutinn en aðrir veðja á hærri kröfur. FL Group á stóran hlut í Inspired Gaming og var komið á fremsta hlunn með að gera yfirtökutilboð í nóvember. Þá heyrðist talað um 385 pens á hlut, rúmlega 550 krónur, en þær viðræður runnu út í sandinn vegna óhagstæðra markaðsaðstæðna, að sögn FL Group. en skv. ársskýrslu þess var kostnaðurinn við áætlaða yfirtöku rétt tæpur milljarður. Rekstur Inspired Gaming virðist hafa staðið í járnum síðustu misseri og hyggst fyrirtækið skera starfsemi sína niður, m.a. með því að selja þann hluta þess sem annast rekstur spilakassa í vínveitingahúsum. Hefur sókn í slík tæki dregist verulega saman í kjölfar reykingabanns á stöðunum. Times greindi frá þessu.
Mest lesið Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Fleiri fréttir Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira