Viðskipti erlent

Apple mokar út iPhone á kostnað Motorola

iPhone hefur slegið í gegn.
iPhone hefur slegið í gegn.

Apple fyrirtækið skiaði góðri afkomu á fyrsta ársfjórðungi og geta Steve Jobs og félagar þakkað það gríðarlegum vinsældum iPhone símans. Fyrstu þrjá mánuði ársins seldust 1,7 milljónir síma sem er greinilega að bitna illa á Motorola einum helsta keppinaut Apple á símamarkaði, en sala á Motorola farsímum dróst saman um 40 prósent á sama tíma.

Fyrirtækin birtu afkomutölur fyrir fyrsta ársfjórðung í dag og þar er ólíku saman að jafna. Steve Jobs lýsti því yfir að þetta væri besti fjórðungur í sögu fyrirtækisins en hagnaður jókst um 36 prósent og var um einn milljarður dollara. Þetta er þvert á spár markaðsmanna sem höfðu séð fyrir sér samdrátt hjá fyrirtækinu í ljósi þess að hægst hefur á neyslunni víðast hvar í heiminum. Það á ekki við hjá Apple sem seldi 2,3 milljónir tölva, 1,7 milljónir iPhone og 10,6 milljónir iPod tónhlaða á tímabilinu.

Motorola er hins vegar í vandræðum. Tap félagsins á tímabilinu er 194 milljónir dollara og salan hefur ekki verið jafn dræm í fjögur ár. Það útskýrist fyrst og fremst af því að Motorola hefur ekki tekist að kynna til leiks arftaka að hinum geysivinsæla Razr síma og ekki bætir úr skák að þú ert ekki maður með mönnum nema að þú eigir iPhone þessa dagana. Á síðasta ári lækkuðu bréf í Motorola um 47 prósent og nú hefur farsímadeild fyrirtækisins verið aðskilin frá móðurfélaginu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×