Viðskipti erlent

Markaðir á Wall Street opna í rauðu

Markaðir á Wall Street opnuðu með rauðum tölum í dag eins og vænst var. Dow Jones vísitalan hefur lækkað um 1,1% í fyrstu viðskiptum og Nasdag um 1,2%. Þá hefur S&P vísitalan lækkað um 2%.

Fyrir opnunina voru birt tölur um atvinnuleysið í Bandaríkjunum sem fer vaxandi. Alls misstu 250.000 manns vinnu sína í landinu í nóvember mánuði. Talið var fyrirfram að 205.000 manns myndu missa vinnuna. Þessar tölur auka óttann um langvarandi kreppu og gerðu það að verkum að Wall Street opnaði í mínus.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×