Auðmannafjölskyldan Merckle gæti truflað söluna á Actavis 25. nóvember 2008 09:26
Ein efnaðasta fjölskylda Þýskalands, Merckle, gæti truflað söluna á Actavis því fjölskyldan hyggst selja lyfjafyrirtæki sitt Ratiopharm GmbH. Fyrirtækið er umsvifamikið á samheitalyfjamarkaðinum í Evrópu og víðar eins og Actavis. Greint er frá málinu á Bloomberg-fréttaveitunni sem tekur sérstaklega fram í umfjöllun sinni um áform Merckle fjölskyldunnar að salan á Ratiopharm myndi fara fram á sama tíma og Actavis er í sölu. Ludwig Merckle forstöðumaður fjárfestingarsjóðs fjölskyldunnar segir í yfirlýsingu um málið að fjölskyldan sé að leita allra leiða til að minnka skuldir sínar með eignasölu og salan á Ratiopharm sé einn af kostunum í stöðunni. Carsten Kunold greinandi hjá Merck Finck & Co. í Munich segir í samtali við Bloomberg að erfitt verði fyrir Merckle-fjölskylduna að selja Ratiopharm þar sem markaðsaðstæður séu ekki góðar í augnablikinu. Vandamál Merckle stafa af því að sjóðir fjölskyldunnar tóku stóra skortstöðu í hlutabréfum Volkswagen fyrr í ár og brenndu sig illa á því eins og fjölmargir vogunarsjóðir. Merckle veðjaði á að hlutabréfin myndu halda áfram að lækka í verði en það þveröfuga gerðist 26. október þegar Porsche tilkynnti að þeir hefðu aukið hlut sinn í VW upp í 75%. Við þetta fjórfölduðust hlutabréfin í verði á aðeins tveimur dögum á meðan Merckle og aðrir sjóðir reyndu í örvæntingu að losa sig úr stöðum sínum. Ratiopharm var stofnað 1973 og var fyrsta samheitalyfjafyrirtæki Þýskalands. Starfsmenn þess nú er um 5.400 talsins og veltan á síðasta ári nam vel yfir 300 milljörðum kr.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira