Tilgangslaust að eiga hlutabréf í augnablikinu 2. júlí 2008 13:20 Frá Kauphöllinni í Frankfurt. MYND/AFP
Verðbréfasalar víða í Evrópu segja nær tilgangslaust að eiga hlutabréf í augnablikinu vegna hækkandi olíuverðs og versnandi stöðu bankanna. Verð á hlutabréfum um gjörvallan heim hefur lækkað. Verð á hlutabréfamörkuðum víða um heim hefur haldið áfram að lækka samhliða vaxandi verðbólgu og síhækkandi olíuverði. Evrópskir hlutabréfamarkaðir hafa skolfið í dag og það sama má segja um markaði vestan hafs og í Asíu. Verðbréfavísitölur halda áfram að lækka og vonleysi að grípa um sig. Þýskur verðbréfasali lét hafa eftir sér að engin ástæða væri til að eiga hlutabréf í augnablikinu á meðan olía héldi áfram að hækka og staða banka áfram að versna. Sarkozy Frakklandsforseti segir að evran sé að minnsta kosti 30 prósentum of hátt skráð og hefur lagst gegn vaxtahækkunaráformum Evrópska seðlabankans. Verðbólga á evrusvæðinu er nú um fjögur prósent. Talið er að hlutabréfaeigendur hafi tapað liðlega 3,3 trilljónum dollara það sem af er ársins. Hlutabréfamarkaðir í Kína hafa lækkað mest - Shanghai markaðurinn um 48 prósent síðan í ársbyrjun. Verðbólga hækkar hratt í Asíu þar sem ýmsir íslenskir verðbréfasjóðir fjárfesta og vextir eru þar einnig á uppleið.
Mest lesið Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Viðskipti innlent „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Atvinnulíf Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Verkalýðshreyfingin sé stærsta ógnin við starfsöryggi á veitingastöðum Viðskipti innlent Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Samstarf Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira