Neyðarfundur um olíukreppu skilaði litlu í dag 22. júní 2008 19:15
Gjá hefur myndast milli olíusöluríkja og kaupenda á vesturlöndum vegna deilna um hvað valdi síhækkandi olíuverði á heimsmarkaði. Neyðarfundur leiðtoga olíurframleiðsluríkja og helstu iðnríkja heims um olíukreppuna skilaði litlum árangi í dag. Olíuverð hefur hækkað um fjörutíu prósent frá áramótum og fór í hundrað og fjörutíu bandaríkjadali á tunnuna um tíma fyrir skömmu. Neyðarfundinn sóttu fulltrúar fjölmargra ríkja og olíufyrirtækja. Abdullah konungur Sádí Araba tilkynnti að þeir ætluðu að auka framleiðslu í níu komma sjö milljónir olíutunna á dag fyrir lok júlí til að mæta mikilli eftirspurn. Hann hvatti önnur olíuframleiðsluríki til að gera slíkt hið sama. Abdullah konungur bauð milljarða í lán til fátækari ríkja vegna áhrifa hækkandi olíuverðs og lagði til að sjóður þeim ríkjum til stuðnings yrði settur á fót með aðstoð Alþjóðabankans. Hann lagði áherslu á að hækkandi olíuverð væri ekki Sádí Aröbum að kenna. Fremur sé að sakast við sjálfselska spákaupmenn sem sitji á birgðum og þá sem hert hafi á skattlagningu á olíu. Þrátt fyrir þetta kenni fjölmagir á OPEC, samtök olíusöluríkja, einvörðungu um þróunina þó samtökin hafi látið markaðinn ráða olíuverði í lengri tíma og reynt að svara aukinni eftirspurn. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, sagði að herða yrði á framleiðslu til að lækka verðið. Þess fyrir utan yrði að hugsa málin upp á nýtt. Upplýsa yrði betur um stöðu olíubirgða í heiminum og kanna betur eftirspurn í framtíðinni. Olíuframleiðendur yrðu að leggja fé í þróun annarra orkugjafa, þar með talið endurnýtanlegrar orku. Síðan yrðu ríkisstjórnir að vinna saman að því markmiði að gera þjóðir heims síður háðar olíu. Engin endanlega niðurstaða fékkst á fundinum enda vart búist við því. Sérfræðingar leggja áherslu á að það sem þó hafi komið fram verið vart til að lækka verð strax.
Mest lesið Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira