Viðskipti erlent

Segir starfsmann Barclays hafa stolið af sér 40 milljónum punda

Við eitt af útibúum bankans í London
Við eitt af útibúum bankans í London

Háttsettur meðlimir Al Thani fjölskyldunnar í Katar hefur stefnt sjóðum Barclays bankans í hættu, með því að höfða mál á hendur bankanum vegna meintra fjársvika upp á 40 milljón pund eða um 6,4 milljarða króna.

Al Thani fjölskyldan í Katar er ein ríkasta fjölskylda heims en skemmst er að minnast kaupa eins meðlimar hennar í íslenska fyrirtækinu Alfesca fyrir skömmu. Það er þó ekki sami aðili og hefur kært bankann.

Sá telur að trassaskapur hjá bankanum hafi gert starfsmanni þar kleift að draga að sér um 4 milljónir punda á mánuði af persónulegum reikningi á Marbella.

Ásakanirnar, sem tengjast millifærslum frá því í desember árið 2001 og febrúar árið 2003, eru útlistaðar enn frekar í skjölum fyrir spænskum dómstólum.

Þó margar tilraunir hafi verið gerðar til þess að ná sáttum í málinu, býst sjeikinn við að geta sett þrýsting á Barclays bankann eftir yfirlýsingar þess efnis að yfirvöld í Katar (Qatar Investments Authorities) muni styðja fjögurra milljarða punda fjáöflunarverkefni bankans.

QIA, sem er stjórnað af öðrum meðlimi Al Thani fjölskyldunnar, er einn af fjórum erlendum fjárfestum sem hafa verið nefndir í 4 milljarða punda fjáröflunarverkefni bankans. Kínverski þróunarbankinn, Temasek í Singapore og japanski fjármálarisinn Sumitomo Mitsui eru einnig nefndir í þessu sambandi.

Ásakanir sjeiksins koma aðeins örfáum dögum áður en bankinn fer í að kynna fjáröflunarverkefnið fyrir breskum hluthöfum.

Talið er að QIA viti ekki um ásakanirnar sem hafa til þessa verið einkamál bankans og þessa meðlims fjölskyldunnar.

Barclays bankinn hefur ekki viljað tjá sig um þessar ásakanir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×