Mikil söluaukning en vonbrigði með hagnað Betsson 15. febrúar 2008 13:59
Mikil söluaukning hefur verið hjá veðmálafyrirtækinu Betsson og mælist hún 121% á milli ára. Aukningin frá þriðja til fjórða fjórðungs er 15%. Hagnaður ársins var um 180 milljónum skr. eða um 1,8 milljarði kr. sem er næstum sex sinnum meiri hagnaður en árið áður. Fjallað er um uppgjörið í Vegvísi greiningar Landsbankans. Þar segir að hagnaður fjórða ársfjórðungs var 43 milljónir skr. en markaðsaðilar höfðu spáð fyrir um 55 milljónum skr. í hagnað og veldur því uppgjörið talsverðum vonbrigðum. Spáð er um 20-30% veltuaukningu á leikjum og veðmálum á netinu á árinu 2008 og hefur Betsson sett sér það markmið að vaxa hraðar en aðrir aðilar á markaðnum í þessum geira. Í dag var einnig tilkynnt að janúar 2008 hefði verið söluhæsti mánuður þeirra frá upphafi og það sem af er febrúar lítur enn betur út. Betsson hóf nýlega starfssemi í Perú og hefur áhuga á fleiri löndum í S-Ameríku. Verð á bréfum Betsson hafa lækkað um 6,08% það sem af er dags.
Mest lesið Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira